13.04.2010 15:14:43 / halldór
Robin Van Persie er í leikmannahópi Arsenal sem heldur á White Hart Lane á miðvikudaginn. Persie hefur ekki spilað síðan um miðjan nóvember en hann meiddist á ökkla í vináttulandsleik gegn Ítalíu.
Þetta eru frábærar fréttir og hann gæti verið mjög mikilvægur á loka sprettinum.
Arsene Wenger sagði líka að Van Persie væri búinn að líta mjög vel út á æfingum. Gott að heyra og spurning hvort hann setji hann ekki bara á morgun.
Leikurinn gegn Tottenham er ekki aðeins mikilvægur fyrir liðin vegna þess að þetta er nágrannaslagur heldur sárvantar bæði liðin stigin!
Arsenal verða að vinna ef þeir ætla að eiga möguleika á titlinum og sigur kæmi þeim í annað sæti. Tottenham þurfa líka á sigri að halda til að klúðra ekki fjórða sætinu fyrir fullt og allt. Þeir eiga mjög erfiða leiki eftir en með sigri gegn Arsenal væru þeir aðeins stigi á eftir Manchester City sem situr í fjórða sætinu. City menn eiga reyndar líka frekar erfiða leiki eftir en hver veit nema Liverpool geri tilkall til Meistaradeildarsætisins.
Allavega stórleikur á ferð og lofa ég umsögn um leikinn hvernig sem hann fer.

»
04.04.2010 13:52:57 / halldór
Arsenal lagði Wolves í gær á Emirates. Það voru sjö breytingar frá byrjunarliðinu sem mætti Barcelona og þar af þrjár vegna meiðsla.
Byrjunarliðið hljóðaði svona.
Almunia, Sagna, Vermaelen, Sol Campell, Silvestre, Walcott, Song, Denilson, Rosicky, Eboue, Eduardo.
Ekki sterkasta lið Arsenal en varð að duga þar sem Arsenal mæta í heimsókn á Nou Camp á þriðjudaginn. Ég óttaðist strax að þetta myndi enda eins og á móti Birmingham. Svekkjandi jafntefli eða eitthvað slíkt til þess eins að hvíla leikmenn fyrir Meistaradeildi na.
Arsenal áttu leikinn frá fyrstu mínútu en gátu bara ekki skorað. Flestar sóknir fóru í gegnum Walcott en það vantaði bara að klára færin.
Staðan var 0-0 í hálfleik þrátt fyrir endalaus færi Arsenal manna. Þegar seinni hálfleikur hófst fóru Úlfarnir líka að reyna að halda boltanum og var leikurinn að þróast í kolranga átt fyrir Arsenal. Færunum fækkaði heldur betur en þau sem gáfust voru ekki nýtt. Það virtist allt stefna í pirrandi jafntefli sem myndi algerlega gera út um titilvonir Arsenal manna. En á 94. mínútu gerðist það. Nicklas Bendtner en ekki hver með skalla eftir fyrirgjöf frá Bacary Sagna. Arsenal fengu svo annað færi á 95. mín 5 sóknarmenn á móti einum varnarmanni og markmanni en sóknin var illa útfærð og á endanum tók Denilson og langan tíma með boltan inn í teig og Craddock að ég held fór fyrir skot hans.
1-0 niðurstaðan og Arsenal aðeins einu stigi á eftir United sem töpuðu á heimavelli gegn Chelsea 1-2.
Önnur úrslit:
Burnley vs Man.City 1-6. Man. City komust í 4. sætið með þessum stórsigri.
Stoke vs Hull 2-0. Hull verða líklegri og líklegri til að falla.
Bolton vs Aston Villa 0-1. Aston Villa jöfnuðu Liverpool að stigum með þessum sigri Liverpool eru þó með betri markatölu.
Portsmouth vs Blackburn 0-0
Sunderland vs Tottenham 3-1. Sunderland menn fengu 3 víti en skoruðu bara úr einu.
»
26.03.2010 15:02:59 / halldór
Arsenal fékk West Ham í heimsókn á Emirates um síðustu helgi.
Leikurinn hófst með látum þar sem Arsenal komust yfir strax á 5. mín.
Denilson með markið, hans 4 mark í deildinni í ár. Hann var inn í vítateigsboganum og skaut honum einfaldlega út í hornið og Robert Green náði ekki að komast þangað í tæka tíð.
1-0 og það stefndi í veislu á Emirates. Arsenal sóktu og sóktu en virtust ekki getað skorað. Á 45. mín, lokamínútu fyrri hálfleiks fékk Vermaelen beint rautt spjald og West Ham menn víti. Þetta var að mér fannst ansi harður dómur. Almunia varði svo vítið frá Diamanti. Þetta var mikilvægasta augnablikið í leiknum þar sem að ef Arsenal hefðu þurft að sækja manni færri þá hefði þetta orðið ansi jafnt. Leikurinn hefði þó getað farið allt öðruvísi ef West Ham menn hefðu nýtt færin sýn. Carlton Cole komst næst því að skora fyrir West Ham en hann skaut í stöngina. Almunia hefði þó líklega varið ef boltinn hefði verið á leiðinni inn.
Það var svo undir lok leiksins sem að Fabregas ætlaði að vippa boltanum frammhjá varnarmanni West Ham en hann setti höndina út til að stoppa það. Þetta gerðist inn í vítateig og víti niðurstaðan.
Fabregas tók vítið sjálfur og skoraði af öryggi. 2-0 lokatölur á Emirates og þrjú stig í hús.
»
19.03.2010 20:27:08 / halldór
Drátturinn um hverjir mæta hverjum í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar fór fram áðan.
Svona dróst í 8-liða úrslitin:
Arsenal vs Barcelona
Bayern Munchen vs Man. Utd.
Inter Milan vs CSKA Moskva
Lyon vs Bordeaux

Arsenal tapaði á móti Barcelona í úrslitunum árið 2006 svo þeir eiga harma að hefna. Henry lék þá fyrir Arsenal en eins og flestum er kunnugt spilar hann nú fyrir lið Barcelona. Spurning hvaða áhrifa það hefur. En það er nokkuð ljóst að Arsenal hefði ekki getað mætt sterkara liði.Hér kemur spá, svo þeir sem vilja ekki vita hverjir komast áfram ekki lesa meira;
Arsenal, Bayern Munchen, Inter Milan og Lyon verði í 4-liða úrslitunum.
Svona í leiðinni ætla ég að benda á að Cesc Fabregas og Thomas Rosicky eru komnir til baka úr meiðslum einnig er Song kominn úr leikbanni. Svo liðið styrkist töluvert fyrir leikinn gegn West Ham.
»
18.03.2010 18:17:11 / halldór
Jæja, hér kemur ýmis tölfræði og fróðleikur:
Kóngar stoðsendingana
| |
nafn
|
félag
|
stoðsendinga fjöldi
|
| 1. |
Cesc Fabregas
|
Arsenal
|
15 |
| 2. |
Frank Lampard
|
Chelsea |
11 |
| 3. |
James Milner
|
Aston Villa
|
11 |
| 4. |
Didier Drogba
|
Chelsea |
9 |
| 5. |
Ryan Giggs
|
Man. Utd.
|
9 |
| 6. |
Aaron Lennon
|
Tottenham |
9 |
| 7. |
Antonio Valencia
|
Man. Utd.
|
9 |
| 8. |
Kevin Davies
|
Bolton |
8 |
| 9. |
Matthew Ethrington
|
Stoke |
8 |
| 10. |
Nicolas Anelka
|
Chelsea |
7 |

Flest gul spjöld... Arsenal nýtur þess vafasama heiðurs að hafa leikmann á þeim lista
| |
nafn
|
félag
|
gul spjöld
|
| 1. |
Lorik Cana
|
Sunderland |
10 |
| 2. |
F. Muamba
|
Bolton |
9 |
| 3. |
Kevin Davies
|
Bolton |
8 |
| 4. |
Leiva Lucas
|
Liverpool |
8 |
| 5. |
J. Mascherano
|
Liverpool |
8 |
| 6. |
W. Palacios
|
Tottenham |
8 |
| 7. |
Alex Song
|
Arsenal |
8 |
| 8. |
H. Thomas
|
Wigan |
8 |
| 9. |
M. Tunrer
|
Sunderland |
8 |
| 10. |
P. Bardsley
|
Sunderland |
7 |

Arsenal hefur ekki átt markakóng deildarinnar síðan Thierry Henry vann þann titil þrjú ár í röð 2004, 2005 og 2006.
»
17.03.2010 16:51:34 / halldór
Ég veit nú ekki hversu oft ég hef sagt betra er seint en aldrei en það á svo sannarlega við núna. Hér kemur yfirlit um það sem hefur gerst undanfarnar 2 vikur.
Arsenal vann Burnley 3-1 á Emirates 6. mars. Cesc Fabregas kom Arsenal yfir á 34. mín en meiddist svo og hefur ekki spilað síðan. David Nugent jafnaði svo fyrir Burnley á 50. mín. þvert gegn gangi leiksins. Theo Walcott sem átti sinn besta leik á tímabilinu kom Arsenal svo yfir á ný 10 mínútum síðar. Andrei Arshavin innsiglaði svo sigurinn 10 sekúntum fyrir leikslok (að meðtöldum uppbótartíma).
9. mars Valtaði Arsenal svo 5-0 yfir Porto samanlagt 6-2 og tryggði sér þar með sæti í
8-liða úrslitum. Bendtner með þrennu og svo Nasri og Eboue með sitt markið hvor. Enginn smá mörk hér er hægt að sjá þau:
13. mars komu Arsenal menn í heimsókn á KC völlinn. En það var síðasti leikurinn sem Hull spiluðu undir stjórn Phil Brown. Andrei Arshavin skoraði sitt 9 mark í deildinni á 14. mín en það endist ekki lengi. Á 28. mín skoraði Jimmy Bullard úr víti. Sol Campell sá brotlegi.
G. Boateng fékk svo sitt annað gula spjald á 44. mín svo Arsenal léku manni fleiri eftir það. Sigurmarkið kom þó ekki fyrr en í uppbótartíma. Hver annar en Nicklas Bendtner!
Hans fjórða mark í deildinni í ár. Kannski ekki neitt frábært meðað við framherja en þetta hlýtur að hafa verið það mikilvægasta 3 stig í hús og Brown rekinn. Fyrir hann er svo kominn Iain Dowie sem hefur einfaldlega það verkefni að bjraga liðinu frá falli en samningur hans varir aðeins út leiktíðina.
Þá er þessu lokið í bili og vonandi næ ég að skrifa meira á næstunni.
»
03.03.2010 16:34:40 / halldór
Francesc Fabregas er búinn að standa sig best í ensku úrvalsdeildinni samkvæmt útreikningum Actim. Áður var það Didier Drogba en Fabregas er búinn að vera funheitur uppá síðkastið og kominn með 13 mörk í deildinni. Hann hefur líka flestar stoðsendingar í deildinni eða 15 stoðsendingar. Flottur árangur hjá fyrirliðanum en hér eru topp tíu.
1. Cesc Fabregas, Arsenal
2. Didier Drogba, Chelsea
3. Wayne Rooney, Man Utd
4. Nicolas Anelka, Chelsea
5. Gabriel Agbonlahor, Aston Villa
6. Carlos Tévez, Man City
7. Frank Lampard, Chelsea
8. Dirk Kyut, Liverpool
9. Thomas Vermaelen, Arsenal
10.Jermain Defoe, TottenhamChelsea hafa flesta eða 3 leikmenn svo koma Arsenal með tvo en önnur lið með færri
»
01.03.2010 21:30:50 / halldór
Arsenal vann um helgina góðan sigur á Britannia vellinum, heimavelli Stoke. Meiðsli Aaron Ramsey skyggðu hinsvegar verulega á þennan góða útisigur. Stoke komust yfir strax á 8. mín. eftir langt innkast frá Rory Delap. Ekki í fyrsta skiptið sem þeir skora eftir langt innkast gegn Arsenal.
Nicklas Bendtner jafnaði svo fyrir Arsenal á 32. mín. með flottum skalla. Eftir það jókst pressa Arsenal manna verulega. En svo á 65. mín mölbraut Shawcross fótinn á Ramsey. Vonað er að hann geti byrjað næsta tímabil en það er þó alls ekki víst. Meiðslin voru keim lík þeim sem Eduardo varð fyrir. Þrátt fyrir þetta sjokk þá héldu Arsenal menn áfram og á endanum gátu þeir komist yfir en það var ekki fyrr en á 87. mín. Nicklas Bendtner skaut boltanum í hönd varnarmanns Stoke og uppskar víti. Fabregas tók það og skorað, en Sörensen var eins nálægt og hægt var án þess þó að breyta stefnu boltans.
Thomas Vermaelen tryggði Arsenal svo sigurinn undir blálokin. Með sínu sjöunda deildarmarki.
Flottur sigur en skelfilega meiðsli niðurstaðan.

Önnur úrslit:
Chelsea vs Man. City 2-4. Chelsea stíga en eitt feilsporið en eru þó enn á toppnum en nú eru Arsenal menn aðeins 3 stigum á eftir þeim. Fyrir 3 leikjum voru Arsenal með 49 stig og Chelsea 58 en nú eru Arsenal með 58 og Chelsea 61. Svo þeir sem afskrifuðu Arsenal þá þurfa heldur betur að gleypa það ofan í sig.
Liverpool vs Blackburn 2-1. Gott að þeir sem minna mega sín fá að gleðjast stöku sinnum.
Tottenham vs Everton 2-1. Donovan var skúrkurinn í liði Everton manna en hann fékk gullið tækifæri til að jafna en brást bogalistinn af svona 2 metra færi.
Burnley vs Portsmouth 1-2. Ef það var einhver sme Portsmouth menn gátu sigrað þá var það að sjálfsögðu liðið í 19. sæti.
Bolton vs Wolves 1-0. Mikilvægur sigur fyrir Bolton sem hoppa upp í 15. sætið með þessum sigri.
Birmingham vs Wigan 1-0. Mjög bragðdaufur leikur sem endaði með því að Birmingham unnu mikilvægan sigur en þeir höfðu tapað síðustu tveim leikjum í deildinni.
»
20.02.2010 17:24:24 / halldór
Arsenal vann í dag góðan sigur á Sunderland í ensku úrvalsdeildinni.
Byrjunarlið Arsenal hljóðaði svona:
Almunia, Clichy, Silvestre, Vermaelen, Eboue, Nasri, Aaron Ramsey, Song, Fabregas (c), Walcott og Bendtner. Eboue hefur verið fínn þessa dagana, allavega mun betri en Sagna sem þarf að fara taka sig á. Fínt að sjá líka að denilson er ekki í byrjunarliðinu þrátt fyrir að það vanti heil ósköp af leikmönnum. En að leiknum í dag.
Arsenal voru mun betri aðilinn allan leikinn. Sunderland virtust ekki hafa mikla trú á verkefninu. Arsenal brutu ísinn á 27. mín. Eboue átti flottan sprett sem endaði með skoti/sendingu á Bendtner sem afgreiddi hann í netið. Annað var varla hægt í stöðunni. Sunderland menn vildu fá rangstöðu en en fengu ekki enda Bendtner réttstæður. Arsenal höfðu leikinn algerlega í hendi sér en þó þegar Sunderland fengu skyndisóknir leit varnarleikurinn oft skrautlega út og má eiginlega þakka sóknarmönnum Sunderland og Almunia fyrir að Sunderland tókst ekki að skora.
Seinni hálfleikur var alveg eins. Þrátt fyrir heil ósköp af færum tókst Arsenal bara ekki að skora. En þeir höfðu aðeins skorað 1 mark í síðustu 3 deildarleikjum.
En á 94. mín. fengu Arsenal réttilega dæmda vítaspyrnu. F. Campell braut á Cesc fabregas fyrir innan teig, frekar klaufalegt brot. Fabregas tók svo vítið. Innan fótar skot í hægra hornið, Gordon fór í rétt horn en boltinn var of utarlega fyrir hann.
Lokatölur á Emirates 2-0.

Önnur úrslit í dag:
Everton vs Man. Utd. 3-1. everton í fantaformi þessa dagana en þeir komu miklu miklu betur út úr viðureignum sínum við Chelsea og Manchester United en Arsenal. Manchester hafa heldur ekki veriða ð sína mila meistara takta á þessu tímabili og þrátt fyrir að Arsenal hafi aðeins fengið 4 stig í síðustu 4 leikjum eru þeir aðeins 2 stigum á eftir United.
West Ham vs Hull 3-0. West Ham komu sér þægilega langt frá fallsæti með þessum örugga sigri.
Wolves vs Chelsea 0-2. Drogba með bæði mörkin. hann er gjörsamlega óstöðvandi þessa dagana.
»
10.02.2010 22:42:59 / halldór
Ég hef núna loksins fengið tilefni til að skrifa um Arsenal en ég hef þá reglu að skrifa ekki eftir tapleiki. Við Arsenal menn höfum verið lagðir í einelti eftir tvö vandræðaleg töp í röð.
En það er ekki það sem ég ætla að fjalla um.
Arsenal "blandaði sér" aftur í titilbaráttuna með 1-0 sigri á Liverpool á Emirates í kvöld.
Diaby skoraði eina mark leiksins með skalla eftir sendingu frá Rosicky þegar 18 mínútur voru eftir. Hvorugt liðið sýndi sýna bestu spilamennsku og fyrri hálfleikur var lítið fyrir augað.
Seinni hálfleikur var heldur skárri. Liverpool menn eru örugglega ekki ánægðir með dómarann en það er ekki til neitt sem heitir sanngirni og kynntust Arsenal menn því vel á Stamford Bridge um daginn.
Flottur sigur en ég sá nú reyndar ekki leikinn, tíbískt missti af sjálfsögðu ekki af United og Chelsea leikjunum en þegar það er sigur þá er maður upptekinn en allavega.
6 stig skilja Arsenal og Chelsea að núna.

Chelsea tapaði 2-1 á Goodison Park í kvöld þar sem Saha skoraði 12 og 13 deildarmörk sín. En Malouda skoraði fyrir Chelsea.
United gerðu svo jafntefli við Aston Villa 1-1 á Villa Park og voru þeir einum færri frá 29. mín.
Eiður Smári byrjaði sinn fyrsta leik fyrir Tottenham en þeir töpuðu 1-0 fyrir Wolves. Mikilvæg stig fyrir Wolves og dýrmæt stig í vaskinn fyrir Spursara.
West Ham vs Birmingham 2-0. Mikilvægur sigur fyrir Zola og hans menn. En West Ham komust með sigrinum upp í 14. sætið.
Hull vs Blackburn 1-0. Hull ískyggilega nálægt fallsæti.
»
21.01.2010 12:33:28 / halldór
Arsenal komst á topp ensku úrvalsdeildarinnar í fyrsta skipti síðan í ágúst í gær.
Arsenal sigraði Bolton 4-2 á Emirates en lokastaðan segir ekki alla söguna.
Bolton komust yfir mjög snemma leiks eftir röð mistaka. Léleg hreinsun hjá Gallas, svo léleg hreinsun hjá Clichy og svo tapaði Vermaelen skallaeinvígi inn í vítateignum 1-0 fyrir Bolton. Þetta átti en eftir að versna. Denilson sem var viriklega slakur í leiknum braut af sér inn í vítateig og víti niðurstaðan. Algjör óþarfi.
Matthew Taylor tók svo vítið og Almunia hefði vel getað varið en varði hann í hliðarnetið. Mjög svekkajandi og meðan Bolton hafði átt þessi tvö skot hefðu Arsenal getað skorað í minnsta lagi eitt mark.
Útlitið svart og tíminn tifaði. En á 43. mín. kom Rosicky til bjargar. Hann fékk sendingu frá Fabregas og hljóp með boltann í frekar þröngt færi en skoraði glæsilega í nærhornið.
Það var þá enn von. Staðan 2-1 fyrir Gestunum í hálfleik. Þegar 7 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik kloppaði Fabregas Jaaskelainen úr mjög mjög þröngu færi. Gallas hafði reyndar brotið af sér fyrr í sókninni svo markið var eiginlega ekki löglegt. Vermaelen skoraði svo sitt fyrsta mark í langan tíma af stuttu færi eftir hornspyrnu. 3-2 fyrir Arsenal loksins komnir yfir. Það var svo Andrey Arshavin sem skaut Arsenal á toppinn með flottu skoti. Fabregas hefði svo átt að fá víti en fékk ekki, þriðja vítið sem hann hefði átt að fá í þessum tveim leikjum gegn Bolton.
En eins og með annað mark Arsenal hefur dómarinn ekki alltaf rétt fyrir sér. Arshavin fékk líka færi þar sem hann hefði getað gefið á Walcott sem hefði verið einn á móti markmanni en var eigingjarn og klúðraði sjálfur úr erfiðara færi. En allavega enginn skaði skeður 4-2 lokatölur og Arsenal komnir á toppinn um stundar sakir hið minnsta. Mesta áhyggjuefnið úr þessum leik er að vörnin virðist ekkert of traust fyrir þetta erfiða leikjatímabil sem er framundan en vonandi að Wenger bæti úr því.
»
17.01.2010 21:51:16 / halldór
Úrslit Helgarinnar voru alveg týpísk fyrir tímabilið. Toppliðin unnu örugga sigra meðan Liverpool þurftu að sætta sig við biturt jafntefli.
Arsenal hafa lengi átt í vandræðum með Bolton á Reebok. Grimmir og sterkir leikmenn Bolton hafa einfaldlega strauað tekníska og litla leikmenn Arsenal. Bolton ætuðu að vana að treysta á það í dag. Fabregas kom til baka úr meiðslum og var hann svona eiginlega munurinn á liðunum. Hann skoraði fyrsta mark Arsenal á 28. mínútu. mjög fallegt mark. Flottur þríhyrningur hjá Eduardo og Fabregas sem er sjóðheitur þessa dagana. Hann hefði allavega átt að fá eitt víti í fyrri háfleik ef ekki tvö en Phil Dowd vildi hafa þetta spennandi.
Bolton áttu margar góðar sóknir en það var iðulega síðasta sendingin eða "finishið" sem klikkaði. Armand Traore var ekki að spila sinn besta leik svo ekki sé meira sagt og sóktu Bolton menn mikið á þennan veika hlekk. Arsenal réðu þó ferðinni að mestu í fyrri háfleik og voru 59% með boltann. Staðan 0-1 í hálfleik. Hvað sem Owen Coyle sagði við sína menn í hálfleik virkaði það vel og komu Bolton menn tvíefldir úr hléinu. Vörn Arsemal virtist ekkert ótakmarkað traust og hefðu Bolton menn auðveldlega getað skorað en það gerðu þeir bara ekki, fór Matthew Taylor t.d. mjög ill að ráði sínu þegar hann var sloppinn einn í gegn. Hann tók hann vel niður á kassann en skaut svo strax af 25 metra færi. (sirka)
Ég held að hann hafi ekki áttað sig á því að hann var sloppin í gegn eða hann tók bara mjög ranga ákvörðun. Það var svo Fran Merida sem gerði út um leikinn á 78. mínútu. Fabregas gaf á Eduardo sem var svona á mörkunum að vera rangstæður flakkið f+or hinsvegar ekki upp og Eduardo gaf fyrir. Þar var Fran Merida sem tóik á móti honum og skoraði auðveldlega af svona 3 metra færi 
Eftir þetta dó leikurinn bara hægt og rólega.
Lokastaða 2-0 fyrir Arsenal. Sem sigldu upp í 45 stig með sigrinum.

Önnur úrslit:
Chelsea vs Sunderland 7-2. Já...einmitt
Man. Utd. vs Burnley 3-0. Leikur sem hefði getað endað allt öðruvísi en á endanum brutu United menn baráttuglaða Burnley menn niður.
Stoke City vs Liverpool 1-1. Stoke jöfnuðu á 90. mín og Dirk Kuyt skallaði úr dauðafæri í stögninga á 95. mín. Alveg dæmigert fyrir Liverpool þetta tímabil.
Everton vs Man. City 2-0. Svakalega góður leikur hjá Everton sem komust með sigrinum í 10. sætið. Þeir eru þó en 10 stigum frá Evrópusæti.
Blackburn vs Fulham 2-0. Langþráður sigur Blackbrun manna.
Aston Villa vs West Ham 0-0. Aston Villa ekki alveg uppá sitt besta þessa dagana. Robert Green bjargaði samt West Ham algjörlega. En þeir komust í 16. sætið.
Tottenham vs Hull 0-0. Myhill var á einhverjum efnum í þessum leik. Hann varði bara einfaldlega allt.Svekkjandi fyrir Tottenham sem eru þá jafnir Manchester City í 4-5 sætinu þ.e.a.s. á stigum.
Wolves vs Wigan 0-2. Skrýtin ákvörðun hjá Dómaranum skemmdi leikinn fyrir Wolves. En hann dæmdi vítaspyrnu og rautt spjald á það sem mér fannst vera litlar sakir.
Flott helgi í enska boltanum (fyrir utan sigra United og Chelsea) búið í bili.
»
01.01.2010 15:36:46 / halldór
Arsenal unnu sinn síðasta leik árið 2009 á miðvikudaginn. Arsenal mættu á Fratton Park og völtuðu yfir Portsmouth 4-1, botnlið deildarinnar. En enn og aftur voru Arsenal að fá á sig óþarfa mark. Fyrsta mark Arsenal kom eftir aukaspyrnu en Eduardo skaut í varnarmann og inn. Allavega þriðja sjálfsmarkið sem Eduardo er valdur af en hann hefur aðeins fengið 3 mörk skráð á sig. Nasri skoraði annað markið en þá stoppaði Eduardo með boltann inn í teig og vanarmaðurinn beið átekta í staðinn fyrir að fara í hann. Eduardo gaf svo á Ramsey sem gaf á Nasri sem skaut og skoraði. Vandræðalega lélegur varnarleikur hjá Portsmouth. Aaron Ramsey skoraði svo flott mark sem hann sá alveg um sjálfur. Þá kom hinsvegar að því að Portsmouth skoruðu í fyrstu sókn sinni í langan tíma. Ég held að ég ætli að kenna einbeitingarleysi um þetta mark og var Wenger alls ekki skemmt. Song kvaddi svo með flottu skallamarki en þetta var síðasti leikur hans fyrir
Afríku-keppnina. Lokatölur 4-1 og Arsenal sitja en í 3. sætinu 2 stigum á eftir United með leik til góða.
»
28.12.2009 11:42:18 / halldór
Arsenal unnu Aston Villa 3-0 á Emirates stadium í gær. Þar með eru þeir aðeins 4 stigum á eftir Chelsea sem eru á toppnum. Ég sá ekki leikinn og get því ekki komið með mjög nána lýsingu. Arsenal voru mun betri aðilinn en tókst ekki að nýta færin sín í fyrri hálfleik. Eduardo virðist koma sér oft í færi en getur engan veginn nýtt sér það. Sem er ansi slæmt. Ef hann bætir þetta gæti hann hinsvegar verið kominn með svona 5+ mörkum meira en hann hefur nú.
Cesc Fabregas var svo tæpur fyrir leikinn en Wenger ákvað á 56. mín. að hans væri þörf. Það tók Fabregas 9 mínútur að skora. Beint úr aukaspyrnu, mjög fallegt mark og nú hafa arsenal unnið 3-0 tvisvar í röð og skorað beint úr aukaspyrnu í bæði skiptin.
Fabregas var svo, þrátt fyrir að vera mjög tæpur ekki búinn heldur setti hann annað á 81. mín eftir stoðsendingu frá Walcott. Hann náði hinsvegar eiginlega ekki að fagna þessu því hann hafði meiðst í ferlinu.
Hann fór svo útaf 2 mínútum seinna.
Arsenal menn voru þó ekki búnir og Diaby sem er sjóðheitur þessa dagana setti það þriðja í uppbótartíma. Frábært einstaklings framtak hjá honum og hans 5 mark í deildinni í 13 leikjum.
Lokatölur 3-0. Wenger sagði svo eftir leikinn að það að setja Fabregas inná hafi verið þess virði þrátt fyrir að meiðslin tækju sig aftur upp. En Fabregas gæti verið frá í allt að 3 vikur!

Sem þýðir að hann gæti misst af leikjunum gegn Portsmouth og Everton.
United unnu Hull 3-1 og komust þar með aftur í annað sætið en Arsenal á einn leik til góða.
Chelsea héldu áfram að klúðra stigum en þeir gerðu 0-0 jafntefli við Birmingham á
St. Andrews. Bæði lið fengu sín tækifæri til að skora en það gerðist ekki.
Önnur úrslit:
Liverpool vs Wolves 2-0. Liverpool komnir í 7. sætið!
Wigan vs Blackburn 1-1.
Sunderland vs Everton 1-1. Everton ætla bara að halda sig í fallbaráttunni þetta árið.
Burnley vs Bolton 1-1
Fulham vs Tottenham 0-0. Spursarar aðeins að misstíga sig eftir gott gengi undanfarið. En reyndar stóðu þeir sig mun betur gegn Fulham en United svo...
West Ham vs Portsmouth 2-0. Portsmotuh sigruðu Liverpool frábærlega síðustu helgi en tókst ekki að halda sig á þeirri braut.
»
23.12.2009 18:14:55 / halldór
Er búinn að vera í burtu og hef ekki getað skrifað en betra er seint en aldrei.
Arsenal vann öruggan 3-0 sigur á Hull City á laugardaginn. Manchester United tapaði 3-0 á móti Fulham á Crevin Cottage! Liverpool tapaði líka gegn Portsmouth og Chelsea náði aðeins jafntefli gegn West Ham á Upton Park. Ansi óvænt úrslit og önnur helgin í röð þegar ekkert stórlið vinnur annað en Arsenal.
Arsenal vs Hull 3-0. Flottur leikur hjá Arsenal og þá sérstaklega Diaby.

Þetta eru leikirnir þar sem maður verður að hirða öll stigin ef maður ætlar að vera í titilbaráttunni. Denilson af öllum mönnum skoraði beint úr aukaspyrnu sem segir nú bara sitt um formið sem Arsenal liðið er í þessa dagana. Eduardo og Diaby skoruðu hin mörkin. Leikmenn eins og Fabregas og Persie eru meiddir en við erum samt að vinna leikina örugglega. Við í meiningunni ég og aðrir sem tengjast Arsenal á einhvern hátt. Góður leikur!
Fulham vs Man. Utd. 3-0. JÁÁÁ SÆÆÆÆÆLL eru United algjörlega að missa takið?!
3 stig í 3 leikjum það er bara svona eins og tíbískt fallbaráttu lið. En ég kvarta ekki þetta er fínt. Ef Arsenal vinna leikinn sem þeir eiga til góða eru þeir í 2. sæti. Þrátt fyrir jafnteflið gegn Burnley um daginn.
West Ham vs Chelsea 1-1. 5 stig í síðustu Fjórum leikjum valda því að ekkert lið virðist vera eitthvað langbest um þessar mundir í enska boltanum. ef Chelsea væru búnir að vinna síðustu 4 leiki í deildinni væru þeir með 11 stiga forskot á United en svo er ekki.
Portsmouth vs Liverpool 2-0. Aumingja Liverpool hafa aldrei séð til sólar á þessu tímabili. 7 töp og 3 jafntefli í aðeins 18 leikjum valda því að þeir sitja í 8. sæti. 8. SÆTI! Man. City sitja nú í því 6. en Mark Hughes var samt látinn fjúka. Hvar liggja mörkin hjá Liverpool? Hversu langt á Benitez að fá að sökkva með liðið? Þeir eru 14 stigum frá toppnum 14 stig eftir 18 leiki. Þetta nær ekki nokkurri átt.
Önnur úrslit:
Man. City vs Sunderland 4-3
Everton vs Birmingham 1-1
Wolves vs Burnley 2-0
Wigan vs Bolton 0-0
Blackburn vs Tottenham 0-2
Aston Villa vs Stoke City 1-0
Flott helgi fyrir Arsenal sem vonandi fara að komast allavega í annað sætið. Ég held svo að úrslit tímabilsins gætu ráðist allavega fyrir Arsenal .þegar þeir mæta United 30. janúar, Chelsea 6. febrúar og Liverpool 9. febrúar. 9 stig í þessum leikjum yrðu allavega ekkert smá boost.
»
Síður:
1 2 3 ...
38